Nýja heimasíðan okkar er í smíðum. Ábendingar velkomnar!

Kapalstigar og netþjónaskápar í gagnaveri

Sérþekking á orku og innviðum!

ACCORA er íslenskt tækni- og þjónustufyrirtæki sem hjálpar gagnaverum, fyrirtækjum og stofnunum að byggja upp örugga, áreiðanlega og framtíðarhæfa innviði.

Ræðum verkefnið þitt
Um okkur

ACCORA varð til árið 2026 við sameiningu Rafholts og orku- og innviðasviðs Origo. Með sameiningunni varð til fyrirtæki sem byggir á áratugalangri reynslu af rafverktöku, fjarskiptum, varaafli, kælilausnum og þjónustu við mikilvæga innviði.

Um ACCORAVaraaflsstöð í vélarsal
Sérsvið okkar

Þjónusta fyrir íslenskar aðstæður

  • 01

    Varaafl og rafstöðvar

    UPS-kerfi, vararafstöðvar og aðrar varaaflslausnir fyrir starfsemi sem reiðir sig á örugga og samfellda raforkuafhendingu.

  • 02

    Kælilausnir

    Sérhæfð kælikerfi fyrir gagnaver, tæknirými og önnur rekstrarumhverfi þar sem gerðar eru miklar kröfur um hitastýringu og rekstraröryggi.

  • 03

    Almennar raflagnir

    Raflagnir og rafdreifikerfi fyrir atvinnuhúsnæði, iðnað, opinberar byggingar og stórframkvæmdir.

  • 04

    Smáspenna og fjarskipti

    Ljósleiðaralagnir, netlagnir, fjarskiptainnviðir og smáspennukerfi.

Fólkið okkar

Hjá ACCORA starfar fjöldi sérfræðinga, rafvirkjar og rafvirkjameistarar, fjarskiptasérfræðingar, verkfræðingar, tæknifræðingar og sérfræðingar sem hafa hlotið þjálfun og vottanir frá framleiðendum. Saman búum við yfir víðtækri reynslu af uppbyggingu og rekstri mikilvægra innviða á Íslandi.

Lesa nánar
Blogg

Fróðleikur frá sérfræðingum ACCORA

Fólk og framkvæmdir

Mannskapur og reynsla fyrir stór verkefni

  • 39 ár

    Við höfum þjónustað viðskiptavini okkar frá árinu 1987

  • 200.000+

    Ljósleiðaraþræðir tengdir milli bygginga

  • 170

    Sérfræðingar með fjölbreyttan bakgrunn

Birgjar og samstarfsaðilar

Búnaður frá framleiðendum sem við treystum

Verkefni

Hvernig getum við aðstoðað?

Ertu að undirbúa nýtt verkefni, leita að sérhæfðum búnaði eða þarftu þjónustu við kerfi sem þegar eru í rekstri? Við aðstoðum við ráðgjöf, val og sölu búnaðar, uppsetningu, endurbætur og reglubundið viðhald. Segðu okkur frá verkefninu og við komum þér í samband við réttu sérfræðingana.